
Mikki og Mína Dagsleiga
Flottur fyrir breiðan aldur, dót og rennibraut.
Kastala lýsing
Mikki og Mína Þrælskemmtilegur kastali með glæsilegum fronti af þessum sívinsælu karakterum. Þessi kastali inniheldur leiksvæði með dóti ásamt rennibraut.Yfirbyggt net yfir rennibraut og á hliðum svo hægt er að fylgjast með inn um hliðar. Aðeins stærri en Stóri Minion, með aðeins lægri yfirbyggða rennibraut og lægra þrepabili tryggir að þessi hentar nokkuð breiðu aldursbili, líka yngri börnunum. Helstu upplýsingar fyrir leigu. - Þarf kerru /sendibíl /Pallbíl. Kastalinn er þungur svo getur reynst erfitt að koma honum langt frá bíl eða upp/niður stiga. - Athugið að alltaf ber að festa hoppukastala, með hælum eða sandpokum. Viðskiptavinir bera ábyrgð á fara eftir þeim reglum sem fram koma á https://www.hoppukastalar.is/notkunarreglur Búnaði ber að skila í sama ásikomulagi og hann er sóttur. - Alltaf skal nota undirlög undir kastala en þau vernda botninn fyrir skemmdum, dempa hljóð og halda vatni frá. - Þrif og þurrkun er innifalið, þó innan þess marka að ekki sé farið með mat, nammi o.s.frv í kastala og ekki notaðir skór. Áskiljum okkur rétt til þess að rukka aukagjald, sé eftirfylgni ekki gætt samkvæmt reglum.








Contact Details
Dalvegur 4, Kópavogur, Iceland
+3548203889
hoppukastalar@hoppukastalar.is
