top of page

Þjónusta og fyrirkomulag hoppukastalaleigu

Við bjóðum upp á góða þjónustu á frábæru verði, endilega hafðu samband ef það er eitthvað sem við getum gert fyrir þig eða ef þig vantar nánari upplýsingar.

Fyrirkomulag:

​   Þú smellir á "Velja kastala"  hér uppi til hægri og velur  kastala sem þér líst á fyrir nánari upplýsingar. Í framhaldinu má sjá lausar dagsetningar til að velja úr. Veldu dag og svo þá tímasetningu sem þú vilt að kastalinn sé tilbúinn til notkunar á uppsetningarstað. Fylltu út upplýsingar þínar og sendu svo bókunarbeiðni sem við svo yfirförum og alla jafna samþykkjum innan skammst tíma.

   Við mætum svo með kastalann til þín, setjum hann upp og leiðbeinum þér með notkun. Að leigu lokinni komum við svo að sækja og ganga frá. 

Einnig er Í boði að sækja og skila talsvert af köstulum annaðhvort sem dagsleiga eða helgarleiga. Þetta á við um Regnbogann, Hvolpasveit, Frozen höllina, Trolls, Leikvöllinn, Risaeðluna og Mikka og Mínu.

Aðstaða okkar er á dalvegi 4, efra bílaplanið, beint ofan á Reyni bakara og Saffran.

*Ath. Pöntunarkerfið gerir ráð fyrir stöðluðum tímum, 5klst á köstulum með afhendingu (Full þjónusta), 10klst á köstulum sem sóttir eru og 72klst fyrir helgarleigur sótt. Hægt er að fá allt að 2klst lengri eða styttri leigutíma og nóg að taka það fram í skilaboðaglugga sem birtist í gegnum bókunarferlið og við uppfærum þá bókun. Leiguverð er per leigu og sama verð með meiri eða minni tíma.

Bílstjórar keyra ekki lengur en til kl 20 á kvöldin og eins lokar aðstaða okkar að dalvegi að jafnaði kl 20.

* ATH: Hægt er að fá afhent eftir kl 15 á daginn þó bókunarkerfið birti það ekki. Staðlaði tími bókunar er settur á 5 klst og þar sem við lokum kl 20 birtast ekki tímar eftir kl 15. Sé óskað eftir afhendingu td kl 16 eða 17 er best að velja seinasta mögulega afhendingartíma og taka svo fram óskatíma í skilaboðaglugga sem birtist í gegnum bókunarferlið. Við uppfærum svo afhendingartímann á pöntuninni og staðfestum.

*Ath.að aðeins er um bókunarbeiðni að ræða í bókunarkerfi og beiðnin er svo yfirfarin af okkur fyrir samþykkt.

*Þjónustusvæði okkar er á höfuðborgarsvæðinu að öllu jöfnu en viðskiptavinum utan höfuðborgarsvæðis býðst að sækja og skila sjálfir köstulum sem bjóða uppá þann möguleika.

Tilboð
  • Facebook Social Icon

Endilega kíktu við hjá okkur á facebook en þar er að finna fleiri kastalamyndir, tilboð, tilkynningar, væntanlegar vörur o.fl.

© 2017 hoppukastalar.is

bottom of page